Fotbolti.net
06.11.08 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Hallgrímur, Guðjón og Guðmundur í GAIS (Staðfest)

Guðjón Baldvinsson er orðinn leikmaður GAIS.

Guðjón Baldvinsson er orðinn leikmaður GAIS.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Egill Tómasson

Sænska félagið GAIS staðfesti í gær komu þriggja íslenskra leikmanna í herbúðir félagsins. Um er að ræða Hallgrím Jónasson sem kom frá Keflavík, og þá Guðjón Baldvinsson og Guðmund Reyni Gunnarsson sem komu frá KR.
Hallgrímur hafði áður staðfest að hann væri genginn í raðir félagsins en hann var samningslaus hjá Keflavík.

GAIS hefur hinsvegar verið í viðræðum við KR um kaup á Guðjóni og Guðmundi Reyni og þeim viðræðum lauk í vikunni.

Allir gera leikmennirnir fimm ára samning við sænska félagið sem greinilega hefur mikinn áhuga ná Íslendingum enda þeir orðnir fjórir hjá félaginu því fyrir var Eyjólfur Héðinsson þar.

Heimild: GP

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.