Fotbolti.net
06.11.08 - 16:12
Hafliði Breiðfjörð

Þórunn Helga Jónsdóttir til Santos í Brasilíu (Staðfest)

Þórunn Helga Jónsdóttir til Santos í Brasilíu (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Þórunn Helga Jónsdóttir leikmaður bikarmeistara KR er gengin í raðir brasilíska félagsins Santos og hefur þegar fengið leikheimild með félaginu.
Gareth O\'Sullivan þjálfari KR staðfesti þetta í samtali við Fótbolta.net í dag en hann sagði að Þórunn Helga færi til félagsins í gegnum háskóla sinn í Bandaríkjunum.

Hann sagði að Þórunn Helga verði við æfingar hjá brasilíska liðinu næstu sex vikurnar og fékk einnig leikheimild til að spila með liðinu.

Santos er fornfrægt félag í Brasilíu en liðið er frá Sao Paolo og er þekktast fyrir að einn besti karlaleikmaður allra tíma, Pele, lék með liðinu um árabil.

Santos eru núverandi Brasilíumeistarar og með liðinu leika nokkrir brasilískir landsliðsmenn. Þórunn Helga er líklega fyrsti íslenski leikmaðurinn til að spila í brasilískri deild.

Þórunn Helga var í 23 manna hópi Íslands sem kom saman fyrir leikina gegn Írlandi í umspili um sæti á EM á dögunum en ekki í endanlegum hóp sem fór í leikina. Hún lék alla 18 leiki KR í Landsbankadeildinni í sumar og skoraði eitt mark.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.