06.11.08 - 17:49
Arnar Daði Arnarsson
Dúfa Dröfn Ásbjörnsdóttir í Hauka (Staðfest)

Dúfa Dröfn (t.h.) í leik gegn Val í sumar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það líður varla dagur án þess að fá tíðindi um nýja leikmenn sem ganga til liðs við kvennaliðs Hauka í knattspyrnunni en liðið spilar í 1.deildinni í sumar undir stjórn Salih Heimirs Porca sem ætlar sér greinilega stóra hluti með liðið.
Í vikunni skrifaði fjórði nýi leikmaðurinn undir samning við liðið en um er að ræða markvörðurinn Dúfu Dröfn Ásbjörnsdóttur sem kemur til Hauka frá Keflavík.
Dúfa Dröfn skrifaði undir tveggja ára samning við félagið en auk Dúfu hafa þær Fjóla Dröfn Friðriksdóttir, Linda Rós Þórláksdóttir og Anna Margrét Gunnarsdóttir gengið til liðs við Hauka.
Dúfa Dröfn sem er 26 ára lék átta leiki með Keflavík í Landsbankadeildinni í sumar en hún varð fyrir meiðslum og gat þar af leiðandi ekki spilað síðustu leiki mótsins. Dúfa er mikill íþróttamaður en hún er einnig fyrirliði körfuboltaliðs Hamars sem hefur verið að vekja athygli upp á síðkastið.
,,Þetta er gríðarlegur fengur fyrir liðið að fá svona góðan og traustan markvörð sem Dúfa er,“ sagði Salih Heimir meðal annars á heimasíðu Hauka.
Það er greinilega mikill hugur í Hafnfirðingum og stefnan greinilega sett á Landsbankadeildina.

Heimild: Haukar.is