þri 06. desember 2022 18:47
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ronaldo verður að hætta þessum barnaskap
Mynd: EPA

Það hefur farið mikið fyrir Cristiano Ronaldo undanfarið en hann var rekinn frá Manchester United fyrir að hrauna yfir liðið í viðtali við Piers Morgan.


Hann virðist heldur ekki vera með hausinn rétt skrúfaðann á, á HM í Katar en hann er á bekknum hjá Portúgal gegn Sviss í kvöld.

Gary Neville fyrrum leikmaður Manchester United og sérfræðingur á Sky Sports segir að Ronaldo verði að rífa sig í gang.

„Ég yrði ekki hissa ef hann kæmi inn á í kvöld og skori sigurmarkið en þessi barnaskapur verður að hætta því það endurspeglar hann alls ekki. Arfleið hans til lengri tíma er að hann er einn besti leikmaður í sögunni en undanfarið hefur hann ekki verið að gera vel. Hefur stjóri Juventus rangt fyrir sér? En stjóri Man Utd? Og nú þjálfari Portúgals. Þrír hafa gert það sama við hann núna," sagði Neville.


Athugasemdir
banner
banner
banner