Fotbolti.net
07.01.05 - 16:11

Eboue til Arsenal (Staðfest)

Eboue til Arsenal (Staðfest)
Canon
Emmanuel Eboue frá Fílabeinsströndinni hefur skrifað undir fjögurra og hálfs árs samning við Arsenal. Þetta var reyndar ljóst í nóvember en hann skrifaði ekki undir samninginn fyrr en í dag. Hann kemur frá belgíska liðinu Beveren og er talinn hafa kostað um 1,5 milljónir punda.
Beveren er nokkurskonar uppeldisfélag fyrir Arsenal en Eboue lék nokkra æfingaleiki með Arsenal fyrir tímabilið og leist Arsene Wenger vel á kauða. Eboue er varnarmaður en á Highbury hittir hann fyrir landa sinn Kolo Toure.

"Hann er mjög fjölhæfur leikmaður" sagði Arsene Wenger um hann á síðasta ári þegar hann ákvað að ganga til liðs við Skytturnar. "Hann spilar yfirleitt í miðvarðarstöðunni en hann getur líka spilað hægri bakvörð og á miðjunni."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.