Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fim 07. janúar 2021 13:37
Elvar Geir Magnússon
Vilja þjálfara í sama gæðaflokki og Heimir
Heimir Guðjónsson.
Heimir Guðjónsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Færeyjameistarar HB í Þórshöfn eru í þjálfaraleit eftir að Daninn Jens Berthel Askou lét af störfum til að taka við Horsens í heimalandinu.

Undir stjórn Askou vann HB tvöfalt á síðasta ári en hann var eitt ár við stjórnvölinn. Þar á undan var Heimir Guðjónsson þjálfari HB í tvö ár, vann meistaratitilinn fyrra árið og bikarinn það seinna.

Heimir gerði Val að Íslandsmeisturum á síðasta tímabili eins og lesendur vita vel.

Thomas Juul S. Thomsen, varaformaður HB, segir við in.fo að félagið ætli að ráða þjálfara í sama gæðaflokki og þeir Heimir og Askou. Ráðinn verði erlendur þjálfari í starfið.

Thomsen segir að það hafi verið mikill áhugi á þjálfarastarfinu fyrir ári síðan en hann sé enn meiri núna. Margir þjálfarar hafi sýnt starfinu áhuga. Hann telur að góður árangur færeyskra liða í Evrópukeppni og sú staðreynd að Covid-19 faraldurinn hafi haft lítil áhrif á færeyskan fótbolta ýti undir áhuga.

Spurning er hvort einhverjir íslenskir þjálfarar hafi sóst eftir starfinu hjá HB?
Athugasemdir
banner
banner
banner