07.03.12 - 07:00
Elvar Geir Magnússon
Paul Robinson lánaður til Leeds (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Vinstri bakvörðurinn Paul Robinson hefur verið lánaður frá Bolton til Leeds United. Samningurinn er til eins mánaðar til að byrja með.
Þessi 33 ára leikmaður var áður hjá West Bromwich Albion.
Þessi 33 ára leikmaður var áður hjá West Bromwich Albion.
Leeds er í tíunda sæti Championship-deildarinnar, sex stigum frá umspilssæti.
Á dögunum fékk liðið til sín Danny Webber á frjálsri sölu en hann hafnaði spennandi tilboðum frá Kína og Katar til að ganga til liðs við Leeds.
Á dögunum fékk liðið til sín Danny Webber á frjálsri sölu en hann hafnaði spennandi tilboðum frá Kína og Katar til að ganga til liðs við Leeds.
