Fotbolti.net
07.03.12 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Augnablik fær leikmenn úr efri deildum (Staðfest)

Hjörvar Hermannsson í leik með Þrótti

Hjörvar Hermannsson í leik með Þrótti

Canon

Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl

Augnablik úr þriðju deildinni hefur fengið góðan liðsstyrk undanfarna daga en félagið hefur krækt í nokkra leikmenn sem hafa leikið í efri deildum undanfarin ár.
Leikmennirnir sem um ræðir eru Hjörvar Hermannsson, Jóhann Hilmar Hreiðarsson, Jón Trausti Guðmundsson, Kristján Óli Sigurðsson og Vignir Benediktsson.

Jóhann hefur undanfarin ár verið lykilmaður hjá Dalvík/Reyni en auk þess að spila með Augnabliki verður hann aðstoðarþjálfari liðsins.

Hjörvar kemur frá Þrótti þar sem hann skoraði fjögur mörk í 16 leikjum í fyrra. Þessi 25 ára gamli sóknar og kantmaður er uppalinn hjá Breiðabliki en hann skoraði 22 mörk síðast þegar hann lék með Augnabliki sumarið 2008.

Kristján Óli hefur lengst af á sínum ferli leikið með Breiðabliki en þessi 31 árs gamli kantmaður spilaði sex leiki með Víkingi Ólafsvík í fyrstu deildinni í fyrra. Kristján Óli hefur einnig leikið með Haukum, Selfossi og Reyni S. undanfarin ár.

Vignir, sem er miðvörður, lék með Augnabliki fyrri hlutann á síðasta tímabili en hann lék með Reyni Sandgerði síðari hluta móts. Jón Trausti spilaði ekki fótbolta í fyrra en hann var á mála hjá Hvöt í annarri deildinni árið 2010.

Allir leikmennirnir eru komnir með leikheimild með Augnablik og verða því löglegir gegn HK í fyrsta leik í Lengjubikarnum á mánudag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.