07.04.09 - 11:18
Hafliði Breiðfjörð
Björg Magnea Ólafs í Hauka (Staðfest)

Björg Magnea Ólafs.

Mynd: Úr einkasafni

Björg Magnea Ólafs.

Mynd: Úr einkasafni

Björg Magnea Ólafs sem hefur leikið með Keflavík undanfarin ár er gengin í raðir Hauka og leikur með liðinu í 1. deildinni á komandi tímabili.
Björg Magnea er nú í námi í Bandaríkjunum og kemur hingað til lands í rúma tvo mánuði í sumar og spilar þá með Haukum.
Hún er tvítug og hóf meistaraflokksferil sinn hjá Haukum eftir að hafa komið til félagsins frá Val árið 2005.
Á tveimur árum lék hún 28 leiki fyrir Hauka í 1. deildinni og bikarnum og skoraði í þeim 18 mörk.
Þaðan fór hún til Keflavíkur fyrir tímabilið 2007 og spilaði 33 leiki með liðinu í Landsbankadeildinni og VISA bikarnum og skoraði eitt mark fyrir félagið.
Hún snýr nú aftur til Hauka þar sem hún hittir fyrir þjálfarann Salih Heimir Porca sem hefur þjálfað hana undanfarin ár bæði hjá Keflavík og Haukum.
Hún á að baki 4 leiki fyrir U19 ára landslið Íslands.