07.04.09 - 13:37
Hafliði Breiðfjörð
Franskur sóknarmaður í raðir Grindavíkur (Staðfest)

Sylvain Soumare.

Mynd: Grindavík

Sylvain Soumare.

Mynd: Grindavík
Frakkinn Sylvain Soumare skrifaði undir samning við Grindavík í dag en hann hefur verið til reynslu hjá félaginu undanfarnar tvær vikur. Þetta kom fram í fréttatilkynningu frá félaginu.
Samningurinn gildir út þessa leiktíð. Sylvain Soumare er 26 ára örvfættur vængmaður og verður í búningi nr. 18.
Hann lék síðast með Olivais E Moscavide í portúgölsku 2. deildinni en fékk sig lausan undan samningi um áramótin.
Áður lék hann með SC Vinea Eisenstadt í Austurríki en hann hóf ferilinn með US Creiteil í Frakklandi.
Soumare er annar leikmaðurinn sem semur við Grindavík á skömmum tíma en á dögunum gekk Þórarinn Brynjar Kristjánsson til liðs við félagið.
Hér má sjá myndband með Soumare á netinu í leik í Austurríki, hann skorar mark eftir um það bil 1:30 mínútu.
Smelltu hér til að sjá myndbandið.