07.05.09 - 14:58
Hafliði Breiðfjörð
Fjóla Dröfn og Guðrún Anna í KR (Staðfest)

Fjóla Dröfn er komin aftur í KR.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fjóla Dröfn er komin aftur í KR.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fjóla Dröfn Friðriksdóttir er gengin í raðir KR að nýju en hún hafði leikið með liðinu undanfarin ár og farið til Hauka í vetur. Kristrún Lilja Daðadóttir þjálfari KR staðfesti þetta við Fótbolta.net í dag og sagði einnig að markvörðurinn Guðrún Anna Atladóttir sé komin til félagsins frá Fylki.
Þá hefur hin brasilíska Delvanita Souza Santos fengið félagaskipti til KR en Kristrún Lilja sagðist lítið vita um hana. Hún hafi komið til félagsins í gegnum Gareth O\'Sullivan fyrrverandi þjálfara liðsins og það ætti eftir að koma í ljós hvað verður um hana.
Fjóla sem er 27 ára gömul átti fast sæti í sterku byrjunarliði KR á síðustu leiktíð og lék alla 18 leiki KR í Landsbankadeildinni í sumar og skoraði í þeim sex mörk á sinni fjórðu leiktíð með félaginu. Hún ákvað svo að fara til Hauka í vetur.
Markvörðurinn Guðrún Anna Atladóttir var varamarkvörður Fylkis á síðustu leiktíð en hefur nú verið lánuð til KR. Hún lék 3 leiki með Fylki í Landsbankadeildinni á síðustu leiktíð. Hjá KR verður hún varamarkvörður fyrir Írisi Dögg Gunnarsdóttur.
Þá er KR enn að skoða hvort Noko Matlou besta knattspyrnukona Afríku nái að ganga til liðs við félagið en það mál er í viðræðum milli KR og suður afríska félagsins.
Fjóla er annar leikmaðurinn sem yfirgaf KR í haust en hefur nú snúið aftur til félagsins. Áður hafði Hrefna Huld Jóhannesdóttir komið aftur frá Stjörnunni.