07.05.09 - 19:02
Magnús Már Einarsson
Högni Helgason í Fjarðabyggð á láni (Staðfest)

Högni er hér annar frá vinstri.

Mynd: Jón Örvar Arason

Högni er hér annar frá vinstri.

Mynd: Jón Örvar Arason
Fjarðabyggð hefur fengið miðju og sóknarmanninn Högna Helgason á láni frá Keflavík.
Högni er 19 ára gamall en hann lék með Hetti upp yngri flokkana áður en hann gekk í raðir Keflvíkinga árið 2006.
Undanfarin ár hefur Högni leikið með öðrum flokki Keflavíkur og þá hefur hann einnig leikið sjö leiki með meistaraflokki félagsins í efstu deild.
Áður en hann fór í Keflavík hafði Högni leikið 29 deildar og bikarleiki með Hetti og skorað í þeim fimm mörk.
Högni ætti að geta leikið sinn fyrsta leik með Fjarðabyggð á sunnudaginn þegar að liðið mætir Aftureldingu í fyrstu umferð fyrstu deildarinnar.

Heimild: Heimasíða Fjarðabyggðar