Fotbolti.net
07.05.26 - 18:55
Brynjar Ingi Erluson
Jói útherji

Mendy lengur frá en talið var í fyrstu - Íhugar að leggja skóna á hilluna

Mendy lengur frá en talið var í fyrstu - Íhugar að leggja skóna á hilluna
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Franski vinstri bakvörðurinn Ferland Mendy verður lengur frá en talið var í fyrstu. Þetta kom fram í þættinum Tiempo de Juogo.
Verður frá í fimm mánuði
TENGT EFNI

Verður frá í fimm mánuði

Upphaflega var talið að Mendy yrði aðeins frá í fimm mánuði vegna meiðslanna.

Hann meiddist á læri eftir tæpan stundarfjórðung í leik Madrídinga gegn Espanyol, en samkvæmt Tiempo de Juogo eru meiðslin töluvert alvarlegri en fyrstu rannsóknir sýndu fram á.

Mendy, sem er þrítugur, hefur verið að glíma við erfið meiðsli síðustu ár og eru nýjustu fréttirnar enn eitt höggið fyrir Frakkann sem er sagður íhuga það að leggja skóna á hilluna.

Í þættinum kom fram að hann þarf að fara í aðgerð og í kjölfarið í endurhæfingu, en áætlað er að hann verði frá í eitt ár.

Real Madrid mun reyna að sannfæra hann um að halda áfram að spila, en hann er samningsbundinn félaginu til 2028.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.