Fotbolti.net
07.05.26 - 23:41
Brynjar Ingi Erluson

Sjötta sætið aldrei verið mikilvægara

Aston Villa gæti fært sjötta sætinu farseðil í Meistaradeildina

Aston Villa gæti fært sjötta sætinu farseðil í Meistaradeildina

Canon

Mynd: EPA

Sú staða er komin upp í ensku úrvalsdeildinni að sjötta sætið gæti gefið farseðil í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð og hefur það því aldrei verið mikilvægara að hafna í því sæti.
Aston Villa vann Nottingham Forest, 4-0, og flaug áfram í úrslit Evrópudeildarinnar.

Fimmta sætið á Englandi gefur þátttöku í Meistaradeildina, en ef Villa hafnar í því sæti og vinnur Evrópudeildina mun sjötta sæti ensku úrvalsdeildarinnar gefa farseðil í Meistaradeildina.

Villa er sigurstranglegra en Freiburg í úrslitaleik Evrópudeildarinnar sem fer fram í Istanbúl í Tyrklandi eftir þrettán daga, en allt getur svo sem gerst í úrslitaleikjum.

FootballMeetsData segir yfirgnæfandi líkur á því að Villa hafni í 5. sæti úrvalsdeildarinnar og taki Evrópudeildartitilinn sem gefur liðum á borð við Bournemouth, Brentford, Brighton, Everton og Chelsea von á Meistaradeildarsæti.

Þrjár umferðir eru eftir af úrvalsdeildinni og er baráttan hörð um sjötta sætið. Bournemouth situr í 6. sæti með 52 stig, Brentford í 7. sæti með 51 stig og síðan koma Brighton, Everton og Chelsea næst á eftir með 48 stig.

Á síðasta ári voru sex úrvalsdeildarlið í deildarkeppni Meistaradeildarinnar. England fékk fimm sæti í gegnum deildina og þá vann Tottenham Evrópudeildina, en hafnaði í 17. sæti deildarinnar.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal000
2Aston Villa000
3Bournemouth000
4Brentford000
5Brighton000
6Chelsea000
7Coventry000
8Crystal Palace000
9Everton000
10Fulham000
11Hull City000
12Ipswich Town000
13Leeds000
14Liverpool000
15Manchester City000
16Manchester Utd000
17Newcastle000
18Nott. Forest000
18West Ham38-1939
19Burnley38-3722
19Sunderland000
20Wolves38-4120
20Tottenham000
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.