07.08.08 - 08:46
Davíð Örn Atlason
Andy Johnson til Fulham (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Andy Johnson er loksins genginn í raðir Fulham frá Everton, en þetta kom allt í ljós fyrr í morgun.
Þessi fyrrum leikmaður Crystal Palace átti bara eftir að fara í læknisskoðun, en hefur nú staðist hana.
Í læknisskoðuninnni var talið að gömul meiðsli í hné hefðu tekið sig upp og það tafði samningaviðræður.
Fulham voru sagðir ætla að borga tólf milljónir punda fyrir Johnson, en þeir borga 10, 5 milljónir fyrir hann.
Johnson skrifaði undir fjögurra ára samning við félagið og var Roy Hodgson, knattspyrnustjóri Fulham hæstánægður með að hafa fengið hann..
,,Ég hef gefið það í ljós að ég vildi bæta Andy Johnson við hópinn minn hjá Fulham. Ég tel að hæfileikar hans geti nýst okkur vel í baráttunni á næsta tímabili og ég er meira en ánægður með að hafa fengið hann til margra ára,\" sagði Hodgson við opinbera heimasíðu félagsins.

Heimild: Sky