Fotbolti.net
07.08.08 - 17:21
Guðmundur Dagur Ólafsson

Nicky Shorey til Aston Villa (Staðfest)

Shorey í leik með enska landsliðinu

Shorey í leik með enska landsliðinu

Canon

Mynd: Getty Images

Enska úrvalsdeildarfélagið Aston Villa hefur gengið frá kaupunum á vinstri bakverðinum Nicky Shorey frá Reading en kaupverðið er talið vera í kringum 3,5 milljónir punda.
Shorey kemur til með að fylla skarð Hollendingsins Wilfred Bouma sem meiddist alvarlega á ökkla fyrir stuttu og verður frá keppni í að minnsta kosti 6 mánuði.

Shorey skrifar undir þriggja ára samning við Birminghamliðið og er fjórði leikmaðurinn sem gengur til liðs við Villa í sumar en þegar eru komnir markverðirnir Brad Friedel og Brad Guzan og miðjumaðurinn Steve Sidwell.

Talið er að Villa muni einnig ganga frá kaupum á hægri bakverðinum Luke Young seinna í kvöld eða þá snemma á morgun.

Heimild: Heimasíða Aston Villa

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.