Fotbolti.net
07.08.08 - 06:00
Guðmundur Dagur Ólafsson

Luke Young til Aston Villa (Staðfest)

Luke Young, til vinstri, er farinn til Aston Villa

Luke Young, til vinstri, er farinn til Aston Villa

Canon

Mynd: Getty Images

Aston Villa staðfestu í gærkvöldi kaupin á hægri bakverðinum Luke Young frá Middlesbrough.
Fyrr í gærkvöldi gekk Martin O\'Neill, stjóri Villa, frá kaupunum á vinstri bakverðinum Nicky Shorey frá Reading fyrir 3,5 milljónir punda.

Hinn 29 ára gamli Young er því fimmti leikmaðurinn sem O\'Neill fær til sín í sumar en hann stóðst læknisskoðun nú fyrr í kvöld.

Young gekk til liðs við Middlesbrough síðasta sumar fyrir 2,5 milljónir punda en upphæðin sem Villa borgar er ekki gefin upp en hún er þó talin vera hærri en það.

Young, sem hóf feril sinn með Tottenham, hefur spilað 7 landsleiki fyrir hönd Englands, þann fyrsta í maí árið 2005 gegn Bandaríkjamönnum.

Heimild: Sky Sports

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.