Fotbolti.net
07.08.10 - 08:05
Magnús Már Einarsson

Mame Biram Diouf til Blackburn (Staðfest)

Mame Biram Diouf til Blackburn (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Mame Biram Diouf, framherji Manchester United, hefur gengið til liðs við Blackburn á láni út komandi tímabil.
Þessi 22 ára Senegali kom til United frá Molde í desember síðastliðnum og lék síðan sex leiki á síðasta tímabili.

Hann skoraði meðal annars í 3-0 sigri United á Burnley í ensku úrvalsdeildinni í janúar.

Sam Allardyce, stjóri Blackburn, hefur verið í leit að framherja og honum hefur nú tekist að klófesta Diouf sem fær það hlutverk að fylla skarð Franco di Santo sem er farinn aftur til Chelsea.

Diouf hoppar beint inn í leikmannahóp Blackburn fyrir vináttuleik liðsins gegn Hearts í dag.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.