Fotbolti.net
07.11.08 - 11:32
Magnús Már Einarsson

Kristófer Sigurgeirsson tekur við Reyni Sandgerði (Staðfest)

Kristófer fagnar marki hjá Fjölni.

Kristófer fagnar marki hjá Fjölni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Kristófer Sigurgeirsson hefur verið ráðinn þjálfari Reynis frá Sandgerði en hann mun einnig spia með liðinu í annarri deildinni næsta sumar. Þetta staðfesti Kristófer við Fótbolta.net í dag.
Kristófer hefur skrifað undir þriggja ára samning við Reyni en hann tekur við liðinu af Elvari Grétarssyni.

Undanfarin þrjú ár hefur Kristófer verið aðstoðarþjálfari hjá Fjölni en hann mun nú í fyrsta sinn vera aðalþjálfari í meistararaflokki.

Á ferli sínum lék Kristófer með Breiðablik, Fram og liði í Grikklandi svo eitthvað sé nefnt en hann lagði skóna á hilluna eftir að hafa leikið með Fjölni í fyrstu deildinni árið 2006.

Hann hefur hins vegar tekið skóna af hillunni og ætlar að leika með Reynismönnum næsta sumar auk þess að þjálfa liðið.

Reynismenn enduðu í sjöunda sæti í annarri deild á síðustu leiktíð en liðið lagði topplið ÍR 2-1 í lokaumferðinni og bjargaði sér um leið frá falli.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.