Fotbolti.net
07.11.08 - 16:37
Hafliði Breiðfjörð

Sara Björk Gunnarsdóttir í Breiðablik (Staðfest)

Sara Björk ásamt Svavari Jósefssyni framkvæmdastjóra knattspyrnudeildar Breiðabliks.

Sara Björk ásamt Svavari Jósefssyni framkvæmdastjóra knattspyrnudeildar Breiðabliks.

Canon

Mynd: Breiðablik

Kvennaboltinn
Sara Björk Gunnarsdóttir landsliðskona Íslands er gengin í raðir Breiðabliks en frá þessu var greint í fréttatilkynningu frá félaginu nú rétt í þessu.

Sara Björk kemur frá Haukum en hún hafði verið í láni hjá Breiðablik á síðari hluta síðustu leiktíðar.

Hún hafði rætt við nokkur félög í Landsbankadeildinni að undanförnu en valdi að ganga í raðir Breiðabliks og ljóst að um gríðarlegan liðsstyrk er að ræða fyrir Breiðablik að fá hana til liðs við sig.

Hún spilaði sjö leiki með Breiðablik í deild og bikar í sumar og skorði í þeim fimm mörk.
Hún á að baki fjölda leikja með yngri landsliðum Íslands. Hún spilaði sinn fyrsta A-landsleik í fyrra en hefur spilað tólf A-landsleiki á þessu ári, skorað í þeim þrjú mörk og átt sæti í byrjunarliði landsliðsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.