Fotbolti.net
07.11.08 - 17:06
Hafliði Breiðfjörð

Grétar Ali Khan í Víking (Staðfest)

Grétar Ali Khan og ungu drengirnir í dag ásamt Leifi Garðarssyni þjálfara og Heimi Gunnlaugssyni og Birni Einarssyni stjórnarmönnum.

Grétar Ali Khan og ungu drengirnir í dag ásamt Leifi Garðarssyni þjálfara og Heimi Gunnlaugssyni og Birni Einarssyni stjórnarmönnum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Grétar Ali Khan er genginn í raðir Víkings frá 2. deildarliði Gróttu og skrifaði undir þriggja ára samning við félagið í dag. Grétar er 24 ára vinstri bakvörður sem hefur verið fastamaður í liði Gróttu undanfarin fimm ár.

Hann var lykilmaður í liði Gróttu sem kom sér upp úr 3. deild og endaði í 6. sæti annarrar deildar á sínu fyrsta ári á nýliðnu tímabili. Grétar hefur verið fyrirliði Gróttu undanfarin tvö ár.
Hann hefur æft með Víkingi undanfarnar þrjár vikur og gerði í dag þriggja ára samning við félagið. Nánar verður rætt við Grétar í viðtali hér á Fótbolta.net síðar í dag.

Þá greindi Víkingur einnig frá því í dag að á dögunum skrifuðu fimm ungir og efnilegir Víkingar undir samninga við félagið. Þeir Sigurður Egill Lárusson, Tómas Guðmundsson, Daníel Freyr Sigurðarson, Bergur Guðnason og Walter Hjaltested sem skrifuðu allir undir þriggja ára samninga.

Víkingur leikur æfingaleik gegn Landsbankadeildarliði Stjörnunnar í Kórnum í Kópavogi klukkan 12:00 á morgun þar sem stuðningsmenn liðsins geta séð Grétar Ali spila með liðinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.