07.12.04 - 08:53
Hoddle til Úlfanna (Staðfest)

Glenn Hoddle verður ráðinn nýr stjóri Úlfanna í ensku 1. deildinni. Klúbburinn hefur staðfest þetta en blaðamannafundur verður haldinn á eftir klukkan 11. Hann tekur við af Dave Jones sem var rekinn úr starfinu. Hoddle var um tíma orðaður við sitt gamla félag, Southampton, en Wolves tryggðu sér þjónustu hans.
Hoddle hefur ekkert starfað síðan hann var rekinn frá Southampton í september árið 2003. Hoddle byrjaði stjóraferilinn sem spilandi stjóri hjá Swindon áður en hann fór til Chelsea. Næst tók hann við enska landsliðinu en hann hætti með það eftir HM 1998 þegar hann lét niðrandi ummæli falla um fatlaða.
Aftur tók hann við starfi af Dave Jones, en þá hjá Dýrlingunum. Hann gerði góða hluti þar áður en Tottenham lokkuðu hann til White Hart Lane þar sem hann hóf feril sinn sem leikmaður
Spennandi verður að sjá hvort Hoddle nái að koma þessu fornfræga félagi aftur upp í úrvalsdeildina en Úlfarnir eru nú í 17 sæti 1. deildarinnar.