08.03.12 - 18:00
Magnús Már Einarsson
Reynir Sandgerði fær sex leikmenn (Staðfest)

Hafsteinn Ingvar Rúnarsson er genginn í raðir Reynis á nýjan leik.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Reynir Sandgerði hefur fengið liðsstyrk fyrir aðra deildina í sumar en sex leikmenn hafa gengið til lið við félagið undanfarna daga.
Leikmennirnir sem um ræðir eru Daníel Fernandes Ólafsson, Emil Daði Símonarson, Hafsteinn Ingvar Rúnarsson, Jóhann Örn Jónsson, Lórenz Óli Ólason og Sigurður Gunnar Sævarsson.
Hafsteinn Ingvar þekkir vel til hjá Reyni en hann lék með liðinu frá 2006-2010 áður en hann skipti í Víði Garði í fyrra. Emil Daði er sóknarmaður frá Grindavík en hann lék einnig með Reynismönnum árið 2010 áður en hann fór til Noregs í fyrra.
Sigurður Gunnar er bakvörður úr Keflavík en hann var í láni hjá Reynismönnum á síðasta tímabili.
Daníel Fernandes er kant og miðjumaður úr Þrótti og Jóhann Örn er miðjumaður sem kemur frá Leikni Fáskrúðsfirði. Þá kemur Lórenz Óli til Reynismanna á láni frá Grindavík en hann getur leikið sem kantmaður og bakvörður.
Á dögunum fengu Reynismenn einnig hörkuliðsstyrk þegar framherjinn Grétar Ólafur Hjartarson kom til félagsins.