08.03.12 - 16:04
Hafliði Breiðfjörð
Katrín Ómarsdóttir til Kristianstad (Staðfest)

Katrín Ómarsdóttir í landsleik með Íslandi.

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Landsliðskonan Katrín Ómarsdóttir er gengin til liðs við sænska félagið Kristianstad sem Elísabet Gunnarsdóttir þjálfar.
Þessa stundina stendu yfir fréttamannafundur hjá sænska félaginu þar sem Katrín og bandarískur miðjumaður sem þær voru að fá til liðs við sig eru kynntar til sögunnar.
Katrín hafði ætlað að spila með bandaríska liðinu Philadelphia Independence þetta árið en eftir að ljóst varð að deildin yrði ekki spiluð þetta árið var hún orðin án félags.
Hún lék síðast með Orange County Waves í Kaliforníu sem leikur í næst efstu deildinni í Bandaríkjunum.. Liðið vann deildina í fyrra og Katrín skoraði 8 mörk í 13 leikjum.
Þetta er í annað skiptið sem hún semur við Kristianstad því hún var þar líka sumarið 2010 og lék með þeim fram í miðjan ágúst er hún hélt til náms í Bandaríkjunum.
Katrín er 25 ára gömul, hefur leikið 40 A landsleiki og skorað í þeim fimm mörk.
Hjá Kristianstad hittir hún fyrir nokkra Íslendinga, Sif Atladóttir og Guðný Björk Óðinsdóttir leika með liðinu og Elísabet Gunnarsdóttir þjálfar liðið með Björn Sigurbjörnsson sér til aðstoðar.