Arsenal með 20 milljóna punda verðmiða á Jesus - Man City með í forgangi að fá Anderson - City hefur ekki áhuga á Enzo
   mán 08. apríl 2019 10:11
Elvar Geir Magnússon
Klopp gagnrýndur fyrir meðhöndlun á Henderson
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, hefur verið gagnrýndur fyrir meðhöndlun hans á fyrirliðanum Jordan Henderson.

Enski miðjumaðurinn byrjaði á bekknum gegn Southampton en kom inn og skoraði og lagði upp í 3-1 sigri.

Garth Crooks, sérfræðingur BBC, segir að það hafi verið ósanngjarnt af Klopp að setja Henderson á bekkinn í fyrsta lagi.

„'Captain fantastic' yfirtók sviðið gegn Southampton og sýndi að hann á ekki að vera á bekknum," segir Crooks.

„Jordan Henderson átti allan rétt á að vera fúll yfir bekkjarsetunni. Persónulega finnst mér framkoma Klopp hafa verið harkaleg í hans garð með því að setja hann á bekkinn."

Liverpool er með tveggja stiga forystu í ensku úrvalsdeildinni þegar fimm umferðir eru eftir. Manchester City sem er í öðru sæti á enn leik til góða.

Liverpool mætir Chelsea um næstu helgi en City mætir Crystal Palace.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 38 26 7 5 71 27 +44 85
2 Man City 38 23 9 6 77 35 +42 78
3 Man Utd 38 20 11 7 69 50 +19 71
4 Aston Villa 38 19 8 11 56 49 +7 65
5 Liverpool 38 17 9 12 63 53 +10 60
6 Bournemouth 38 13 18 7 58 54 +4 57
7 Sunderland 38 14 12 12 42 48 -6 54
8 Brighton 38 14 11 13 52 46 +6 53
9 Brentford 38 14 11 13 55 52 +3 53
10 Chelsea 38 14 10 14 58 52 +6 52
11 Fulham 38 15 7 16 47 51 -4 52
12 Newcastle 38 14 7 17 53 55 -2 49
13 Everton 38 13 10 15 47 50 -3 49
14 Leeds 38 11 14 13 49 56 -7 47
15 Crystal Palace 38 11 12 15 41 51 -10 45
16 Nott. Forest 38 11 11 16 48 51 -3 44
17 Tottenham 38 10 11 17 48 57 -9 41
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
Slapp
banner