08.05.09 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Hjörvar Hermannsson í Reyni Sandgerði (Staðfest)

Mynd: Heimasíða Reynis

Mynd: Heimasíða Reynis
Reynir Sandgerði hefur samið við framherjann Hjörvar Hermannsson.
Hjörvar var einn af markahæstu mönnum þriðju deildarinnar síðastliðið sumar en hann skoraði þá 22 mörk í 14 leikjum með Augnablik.
Í Lengjubikarnum í ár lék Hjörvar með Hvöt þar sem hann skoraði fimm mörk í jafnmörgum leikjum en núna hefur hann ákveðið að leika með Reynismönnum í sumar.
Hjörvar er uppalinn hjá Breiðablik en hann stefnir á að halda uppteknum hætti frá því í fyrra og raða inn mörkum í sumar.
,,Eigum við ekki að segja að ég stefni á 10-15. Ég ætla að byrja reyna setja 10 og síðan sjáum við til,\" sagði Hjörvar við heimasíðu Reynis.

Heimild: Heimasíða Reynis