Fotbolti.net
08.05.09 - 14:23
Magnús Már Einarsson

Baldur, Gestur og Örn Kató í Aftureldingu (Staðfest)

Gestur Ingi Harðarson.

Gestur Ingi Harðarson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Afturelding hefur fengið þrjá leikmenn til liðs við sig fyrir komandi átök í fyrstu deildinni en liðið mætir Fjarðabyggð í fyrsta leik á sunnudag.
Baldur Þórólfsson kemur á láni til Aftureldingar frá Val. Baldur, sem er varnarmaður, lék þrjá leiki með Val síðastliðið sumar en árið 2007 var hann hluta tímabilsins á láni hjá Völsungi.

Varnar og miðjumaðurinn Örn Kató Hauksson kemur til Aftureldingar frá Fram.

Örn Kató hefur einnig leikið með KA, Val og Fjarðabyggð hér á landi en í fyrra kom hann við sögu í sjö leikjum hjá Fram.

Gestur Ingi Harðarson kemur síðan til Aftureldingar á láni frá Fram en hann hefur undanfarin tvö ár leikið með Mosfellingum á láni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.