Heimild: Vísir.is
Alla leiki Pepsi Max deildar karla og kvenna verður hægt að horfa á í beinni útsendingu fyrir áskrifendur Stöðvar 2 Sport í gegnum vefsjónvarpið.
Umfjöllun um Pepsi Max deildirnar hefur aldrei verið meiri og er þetta í fyrsta skiptið sem allir leikir í þessum deildum verða sýndir í beinni útsendingu.
Það verða valdir leikir á sportstöðvum Stöðvar 2 en hina leikina er hægt að nálgast á heimasíðu Stöðvar 2. Áhorfendur skrá sig inn á vefsjónvarpið og þar er hægt að horfa á alla leiki í beinni útsendingu.
Á vefsjónvarpinu geta áhorfendur einnig horft á eldri þætti tengda Pepsi Max deildunum sem og eldri leiki.
Athugasemdir