Fernandes við Jóa Berg: Ekki slæmt

Bruno Fernandes og Jói Berg eru góðir félagar

Mynd: EPA

Jóhann Berg Guðmundsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bruno Fernandes, fyrirliði Manchester United, virtist nokkuð ánægður með 1-0 sigur Íslands á Englandi í vináttulandsleik þjóðanna á Wembley í kvöld.
Jóhann Berg Guðmundsson, sem gegnir hlutverki fyrirliða hjá Íslandi, birti mynd af sér á Instagram eftir sigurinn á Englendingum, en það voru ummæli Fernandes sem vöktu athygli.
Fernandes og Jóhann Berg eru góðir félagar. Börn þeirra ganga í sama leikskólann og hefur frábær vinátta myndast út frá því, en börn Fernandes mættu meðal annars á síðasta leik Jóhanns fyrir Burnley til að kveðja íslenska landsliðsmanninn.
„Takk Wembley. Þetta var ánægjulegt,“ skrifaði Jóhann undir mynd sína á Instagram.
Bruno setti ummæli við myndina en hann skrifaði: „Ekki slæmt.“
Jóhann svaraði honum og skildi ekkert af hverju portúgalski landsliðsmaðurinn væri að fá svona mörg 'læk' við ummæli sín.