Fotbolti.net
08.08.08 - 18:50
Magnús Már Einarsson

Nolberto Solano til Larissa (Staðfest)

Solano skorar úr vítaspyrnu fyrir Newcastle.

Solano skorar úr vítaspyrnu fyrir Newcastle.

Canon

Mynd: Getty Images

Nolberto Solano hefur gert tveggja ára samning við gríska félagið Larissa.
Þessi 33 ára gamli Perúmaður hefur verið í leit að félagi síðan hann yfirgaf West Ham United í vor.

Um tíma leit út fyrir að Solano myndi fara til Los Angeles og þá æfði hann einnig með Watford á dögunum.

,,Ég er ánægður með þessa ákvörðun. Þetta var ákvörðun sem ég tók í samráði við fjölskyldu mína og þess vegna er ég að fara til Grikklands,\" sagði Solano en hann lék einnig með Newcastle og Aston Villa á sínum tíma.

Heimild: Setanta Sports

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.