08.08.10 - 07:21
Brynjar Ingi Erluson
Deco til Fluminese (Staðfest)

Deco

Mynd: Getty Images

Deco

Mynd: Getty Images
Portúgalski snillingurinn Deco er genginn til liðs við brasilíska liðið Fluminese frá ensku meisturunum í Chelsea.
Deco, sem er 32 ára gamall miðjumaður mun skrifa undir tveggja ára samning við félagið á mánudag, en þetta kemur fram á heimasíðu Fluminese.
Hann kom til Chelsea frá Barcelona árið 2008 þar sem brasilíski þjálfarinn Luiz Felipe Scolari fékk hann til enska liðsins, en hann hafði átt gott gengi að fagna með Barcelona áður þar sem hann vann meðal annars Meistaradeild Evrópu.
Deco kemur á frjálsri sölu til Fluminese þar sem hann hittir fyrrum félaga sinn hjá Chelsea og Barcelona hann Juliano Belletti sem gekk til liðs við félagið á dögunum.

Heimild: BBC