08.08.10 - 18:39
Hafliði Breiðfjörð
Njáll Eiðsson tekinn við Víði Garði (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Njáll Eiðsson hefur verið ráðinn þjálfari Víðis í Garði en hann mun stýra liðinu út tímabilið. Þetta staðfesti Ólafur Róbertsson formaður Víðis í samtali við Fótbolta.net í kvöld.
Njáll tekur við liðinu af Jakobi Má Jónharðssyni sem hætti með Víðismenn í gær.
Þessi reyndi þjálfari hefur verið í fríi frá þjálfun síðan hann hætti með lið Hattar eftir síðasta tímabil.
Njáll hafði þjálfað Hött þrjú ár í röð en áður þjálfaði hann meðal annars lið Vals og ÍBV.
Víðir er í 10. og þriðja neðsta sæti deildarinnar með jafnmörg stig og ÍH sem er í 11. sæti sem er fallsæti.