Fotbolti.net
08.12.04 - 17:31

Redknapp tekur við Southampton (Staðfest)

Redknapp tekur við Southampton (Staðfest)
Canon
Southampton hafa staðfest það að Harry Redknapp sé orðinn knattspyrnustjóri félagsins. Eins og við greindum frá í morgun þá lá þetta í loftinu en þetta var staðfest nú síðdegis. Hann tekur við af Steve Wigley sem stýrði liðinu í 14 leikjum en tókst aðeins að landa einum sigri.
"Ég er í skýjunum yfir því að vera kominn til Southampton" sagði Redknapp í dag. "Liðið er betra en staðan í deildinni gefur til kynna og ég hlakka til að þoka þeim upp töfluna."

Þessi ráðning kemur aðeins hálfum mánuði eftir að Redknapp hætti með Portsmouth. Southampton vildi fá Redknapp eftir að Glenn Hoddle hafnaði liðinu um að taka við og tók þess í stað við Wolves. Wigley verður nú boðin önnur staða hjá félaginu, annaðhvort með varaliðið eða í akademíunni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.