08.12.08 - 14:41
Hafliði Breiðfjörð
Björg Ásta og Guðný Þórðardætur til Vals (Staðfest)

Björg Ásta í leik með íslenska landsliðinu gegn Val.

Mynd: Fótbolti.net - Ragnheiður Jónsdóttir

Guðný Petrína í leik með Keflavík í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Íslandsmeistarar Vals fengu í dag gífurlegan liðsstyrk þegar systurnar Björg Ásta og Guðný Petrína Þórðardætur gengu til liðs við félagið frá Keflavík og skrifuðu undir tveggja ára samning. Freyr Alexandersson þjálfari Vals staðfesti þetta við Fótbolta.net í dag.
Björg Ásta og Guðný hafa verið lykilmenn í liði Keflavíkur undanfarin ár og munu án efa styrkja Valsliðið mikið.

Guðný Petrína Þórðardóttir er 25 ára gamall framherji sem snýr nú aftur í raðir Vals þar sem hún lék síðast árið 2000. Hún skoraði fimm mörk í 16 leikjum fyrir Keflavík í Landsbankadeildinni í sumar. Samtals hefur hún skorað 18 mörk í 78 leikjum í efstu deild, með Val, Breiðablik og Keflavík. Hún lék á sínum tíma 21 leik með Val og skoraði í þeim þrjú mörk.
Hún á að baki einn landsleik fyrir Íslands hönd sem var gegn Englandi ytra í maí í fyrra. Hún hefur spilað 18 landsleiki fyrir yngri landslið Íslands.
Björg Ásta Þórðarsdóttir spilar oftast sem varnarmaður en er fjölhæf og spilaði einnig á miðju og í framlínu fyrir Keflavík í sumar. Hún skoraði eitt mark í 16 leikjum með liðinu í Landsbankadeildinni í sumar.
Björg Ásta sem er 23 ára gömul og á að baki 8 landsleiki fyrir Íslands hönd auk þess að hafa leikið 45 leiki fyrir yngri landsliðin. Hún snýr nú aftur í raðir Vals þar sem hún hafði áður leikið í yngri flokkum. Samtals hefur hún leikið 84 leiki í efstu deild og skorað í þeim þrjú mörk.
Systurnar eru fyrstu leikmennirnir sem ganga í raðir Vals eftir að tímabilinu lauk en liðið hefur áður misst þrjá sterka leikmenn, Margréti Láru Viðarsdóttur, Guðbjörgu Gunnarsdóttur og Guðný Björk Óðinsdóttur sem allar fóru í atvinnumennsku í Svíþjóð.