08.12.08 - 17:15
Hafliði Breiðfjörð
Ásta Árnadóttir gengur í raðir Tyresö í Svíþjóð (Staðfest)

Ásta Árnadóttir er farin í sænsku 1. deildina.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ásta Árnadóttir varnarmaður Vals og íslenska landsliðsins hefur tekið ákvörðun um að ganga til liðs við sænska félagið Tyresö en þetta staðfesti hún í samtali við Fótbolta.net í dag. Hún mun skrifa undir samning við sænska félagið á morgun.
Tyresö leikur í 1. deildinni í Svíþjóð. Félagið hefur höfuðsstöðvar sínar í Stokkhólmi. Félagið ætlar sér stóra hluti í deildinni á næstu leiktíð og ætlar sér upp í efstu deild.
Liður í því er að styrkja liðið meðal annars með Ástu en auk hennar hafa komið til félagsins tvær bandarískar stúlkur, fyrirliði Hammarby og stúlkur frá Bröndby og LdB Malmö.
Ásta Árnadóttir er 25 ára gamall varnarmaður. Hún hóf feril sinn hjá Þór Akureyri en gekk í raðir Vals fyrir tímabilið 2004 og vann sér sæti í íslenska landsliðinu eftir fyrsta tímabilið þar.
Hún hefur leikið 128 leiki í efstu deild og skorað í þeim eitt mark. Hún hefur átt fast sæti í vörninni hjá Val þar sem hún lék 17 af leikjum liðsins í sumar og skoraði eitt mark.
Hún á að baki 31 leik fyrir A-landslið Íslands þar sem hún hefur átt fast sæti í bakvarðarstöðunni og vakið mikla lukku meðal áhorfenda fyrir heljarstökk innköst sín þegar hún leikur með landsliðinu.
Rætt verður við Ástu í viðtali hér á Fótbolta.net á morgun.