08.12.08 - 21:18
Hafliði Breiðfjörð
Lilja Íris Gunnarsdóttir í Stjörnuna (Staðfest)

Lilja Íris í leik með Keflavík gegn Fylki í Landsbankadeildinni í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Sölvi Logason

Lilja Íris Gunnarsdóttir sem hefur verið fyrirliði Keflavíkur undanfarin ár gekk í dag í raðir Stjörnunnar í Garðabæ og skrifaði undir eins árs samning við félagið.
Þetta staðfesti Einar Páll Tamimi formaður meistaraflokksráðs kvenna hjá Stjörnunni í samtali við Fótbolta.net í kvöld.

Lilja Íris er 29 ára gömul er miðvörður. Hún missti fjóra leiki úr vegna meiðsla hjá Keflavík í sumar en spilaði alla hina 14 leikina fyrir liðið í Landsbankadeidinni og skoraði í þeim tvö mörk.
Hún hefur í heildina leikið 55 leiki í efstu deild og skorað í þeim tíu mörk en auk Keflavíkur hefur hún leikið með RVK og Reyni Sandgerði. Hún lék á sínum tíma þrjá leiki fyrir U17 ára landslið Íslands.
Lilja Íris er fimmti leikmaðurinn sem kemur til Stjörnunnar frá því tímabilinu lauk því áður hafði Hrefna Huld Jóhannesdóttir komið frá KR og þær Íris Ósk Valmundsdóttir, Helga Franklínsdóttir og Kristrún Kristjánsdóttir frá Fjölni.
Keflavík hefur orðið fyrir mikilli blóðtöku og níu leikmenn eru farnir frá liðinu. Í dag missti liðið auk Lilju systurnar Björg Ástu og Guðný Petrínu Þórðardætur í Val auk þess sem Vesna Smjlkovic fór í Þór/KA, Danka Podovac í Fylki, og þær Anna Margrét Gunnarsdóttir, Linda Rós Þorláksdóttir, og Dúfa Dröfn Ásbjörnsdóttir í Hauka. Þá mun Jelena Petrovic markvörður ekki koma til liðsins aftur.