08.12.09 - 16:02
Magnús Már Einarsson
Sinisa Mihajlovic tekur við Catania (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Ítalska félagið Catania hefur ákveðið að láta þjálfarann Gianlucca Atzori fara og hefur Sinisa Mihajlovic verið ráðinn í hans stað.
Catania hefur einungis unnið einn leik í Serie A á tímabilinu og er í fallsæti.
Atzori tók við af Walter Zenga í sumar en hann hefur núna fengið að taka pokann sinn.
Mihajlovic fær nú það verðuga verkefni að snúa gengi liðsins við en hann þjálfaði áður Bologna.
Á ferli sínum sem leikmaður lék Mihajlovic meðal annars með Inter og Lazio en hann var frábær aukaspyrnusérfræðingur.

Heimild: Sporting Life