Fotbolti.net
08.12.09 - 20:22
Magnús Már Einarsson

Erlingur Jack, Hjörvar Herm. og Magnús Már í Þrótt (Staðfest)

Erlingur Jack Guðmundsson, Magnús Már Lúðvíksson og Hjörvar Hermannsson.

Erlingur Jack Guðmundsson, Magnús Már Lúðvíksson og Hjörvar Hermannsson.

Canon

Mynd: Getty Images

Þróttarar sömdu í dag við Erling Jack Guðmundsson, Hjörvar Hermannsson og Magnús Már Lúðvíksson.
Magnús Már skrifaði undir tveggja ára samning við Þrótt en hann kemur til félagsins frá KR. Magnús hefur reyndar leikið með Þrótti frá 2005 en hann gekk til liðs við KR fyrir ári síðan.

Hann var síðan lánaður aftur til Þróttar í vor og hann lék með liðinu í Pepsi-deildinni í sumar. Magnús hefur alls skorað þrettán mörk í 85 deildar og bikarleikjum með Þrótti.

Erlingur Jack ákvað fyrr í haust að ganga aftur til liðs við Þrótt frá ÍR og hann hefur núna samið til tveggja ára. Erlingur, sem er 28 ára gamall, er uppalinn hjá Þrótti en hann hefur leikið með ÍR undanfarin þrjú ár.

Þá hafa Þróttarar fengið framherjann Hjörvar Hermannsson til liðs við sig frá Reyni Sandgerði en hann gerði tveggja ára samning við félagið eins og hinir tveir leikmennirnir.

Hjörvar skoraði tólf mörk með Reyni í 2.deildinni á síðasta tímabili en hann hefur alls skorað 41 mark í 45 deildarleikjum með Reyni og Augnablik á ferli sínum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.