Fotbolti.net
08.12.19 - 12:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Ljungberg vill ekki útiloka Meistaradeildarsæti

Ljungberg ræðir við aðstoðarmann sinn, Per Mertesacker.

Ljungberg ræðir við aðstoðarmann sinn, Per Mertesacker.

Canon

Mynd: Getty Images

Freddie Ljungberg, bráðabirgðastjóri Arsenal, hefur ekki gefið upp vonina á að liðið endi í einu af efstu fjórum sætum ensku úrvalsdeildarinnar.
Arsenal mætir West Ham annað kvöld, en liðið hefur ekki unnið í síðustu níu leikjum sínum.

Ljungberg, sem er fyrrum leikmaður Arsenal, hefur stýrt liðinu í tveimur leikjum frá því að Unai Emery var rekinn. Hann stýrði liðinu í 2-2 jafntefli gegn Norwich og 2-1 tapi gegn Brighton.

Eins og staðan er núna þá er Arsenal tíu stigum frá Meistaradeildarsæti og aðeins fimm stigum frá fallsæti. Þrátt fyrir það segir Ljungberg: „Við eigum ekki að hætta að tala um efstu fjögur sætin."

Arsenal hefur ekki náð Meistaradeildarsæti síðan 2015/16 tímabilið.

„Fyrir okkur snýst þetta samt um það sem við erum að gera hér og núna, ekki að líta upp, niður eða til hliðar. Við þurfum bara að vinna í okkar leik og okkar sjálfstrausti."

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton7+1816
4Chelsea8+213
5Liverpool7+112
6Aston Villa8-311
7Brentford7+510
8Leeds7+310
9Everton8-110
10Ipswich Town8-410
11Hull City7+19
12Tottenham8-29
13Fulham8-28
14Newcastle7-48
15Man Utd707
16Crystal Palace7-87
17Bournemouth7-46
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland7-84
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.