Fotbolti.net
09.02.10 - 18:35
Magnús Már Einarsson
Ítalska deildin

Cicinho til Sao Paulo á láni (Staðfest)

Cicinho til Sao Paulo á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Brasilíska félagið Sao Paulo hefur fengið bakvörðinn Cicinho á láni frá Roma.
Cicinho verður á láni þar til 30.júní en ef að Sao Paulo kemst áfram í Copa Libertadores keppninni er möguleiki á að framlengja lánssamninginn.

Cicinho hefur verið úti í kuldanum hjá Claudio Ranieri þjálfara Roma en hann hefur einungis leikið tvo leiki í Serie A á tímabilinu.

Þessi fyrrum leikmaður Real Madrid stökk því á tækifærið þegar að honum bauðst að fara heim til Brasilíu á láni.

Heimild: Goal

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.