Fotbolti.net
09.03.12 - 16:30
Hafliði Breiðfjörð

Óttar Kristinn Bjarnason í KV (Staðfest)

KV heldur áfram að sanka að sé leikmönnum. Hér eru nokkrir þeirra sem hafa komið í vetur.

KV heldur áfram að sanka að sé leikmönnum. Hér eru nokkrir þeirra sem hafa komið í vetur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KV hefur fengið Óttar Kristinn Bjarnason til liðs við sig frá BÍ/Bolungarvík.
Óttar er 28 ára gamall vængmaður sem hefur leikið lykilhlutverk hjá BÍ/Bol undanfarin ár en hann hefur leikið 106 leiki fyrir félagið og skorað í þeim leikjum 62 mörk.

,,Stjórn KV fagnar því að svo sterkur leikmaður hafi ákveðið að ganga til liðs við félagið en hann styrkir liðið enn frekar fyrir komandi átök í 2. deild,\" sagði í tilkynningu frá félaginu í dag.

Óttar leikur sinn fyrsta leik fyrir KV í kvöld þegar liðið mætir Aftureldingu í Lengjubikarnum.

Hann er þrettándi leikmaðurinn sem félagið fær frá því það tryggði sér sæti í 2. deildinni síðasta haust.

Hinir eru Gunnar Kristjánsson úr FH, Einar Már Þórisson úr KR, Halldór Bogason úr KR, Atli Valur Jóhannsson úr KR, Guðmundur Örn Árnason úr Gróttu, Auðunn Örn Gylfason úr KR, Jón Kári Eldon úr Gróttu, Eggert Rafn Einarsson úr Leikni, Einar Bjarni Ómarsson úr Gróttu, Jón Reynir Reynisson úr KR, Tómas Agnarsson úr ÍR og Atli Jónasson úr KR.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.