Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 09. mars 2020 14:45
Elvar Geir Magnússon
Ronaldo búinn að ná þúsund leikjum
Cristiano Ronaldo.
Cristiano Ronaldo.
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo lék sinn þúsundasta fótboltaleik í 2-0 sigri Juventus gegn Inter á Allianz leikvangnum í gær.

„Ég er svo stoltur, mjög mikilvægur sigur," skrifaði Ronaldo á Instagram.

Þessi 35 ára leikmaður hefur einnig spilað fyrir Sporting Lissabon, Manchester United og Real Madrid.

„Ég er stoltur af því að að ná 1.000 opinberum leikjum og ná þessum áfanga með því að vinna tappslag. Þakkir til liðsfélaga minna, þjálfara, fjölskyldu og vina."

Ronaldo hefur skorað 725 mörk fyrir fjögur mismunandi lið og hefur tekið þátt í 18 tímabilum sem atvinnumaður í fótbolta.

Þá hefur hann leikið 164 landsleiki fyrir Portúgal og skorað 99 mörk. Hann hjálpaði Portúgal að vinna EM og Þjóðadeildina. Fimm sinnum hefur hann fengið Ballon d’Or gullknöttinn.

Ronado hefur fimm sinnum fagnað gullinu í Meistaradeildinni, þá hefur hann þrisvar unnið ensku úrvalsdeildina, La Liga tvisvar og Ítalíumeistaratitilinn einu sinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner