Eyrún Vala Harðardóttir er gengin til liðs við Val en hún kemur frá Fram.
Eyrún er fædd árið 2004 og er uppalin í Breiðabliki. Hún hefur spilað með Augnabliki, Aftureldingu, Stjörnunni og HK ásamt Fram á meistaraflokksferlinum.
Eyrún er fædd árið 2004 og er uppalin í Breiðabliki. Hún hefur spilað með Augnabliki, Aftureldingu, Stjörnunni og HK ásamt Fram á meistaraflokksferlinum.
„Við erum afar ánægð með að tryggja okkur undirskrift Eyrúnar. Hún er leikmaður af miklum gæðum og fjölhæfni hennar mun styrkja okkur verulega um allan völl. Þar sem ég hef unnið með henni áður veit ég nákvæmlega hvað hún er fær um, og vinnusemi hennar fellur fullkomlega að Valshugsjóninni. Við hlökkum öll til að sjá hana í rauðu treyjunni," sagði Gareth Owen, tæknilegur yfirmaður Vals.

