Fotbolti.net
09.05.09 - 12:00
Alexander Freyr Tamimi

Karen Sturludóttir á láni til Stjörnunnar (Staðfest)

Karen Sturludóttir mun spila með Stjörnunni fyrri hluta Íslandsmótsins.

Karen Sturludóttir mun spila með Stjörnunni fyrri hluta Íslandsmótsins.

Canon

Mynd: Stjarnan

Kvennaboltinn
Karen Sturludóttir, leikmaður HK/Víkings, hefur gengið til liðs við Stjörnuna á láni til 31. júlí þessa árs og mun hún reynast liðinu gríðarlegur liðsstyrkur.
Karen hefur verið einn af lykilmönnunum hjá sínu liði undanfarin ár og hefur hún spilað með meistaraflokki HK/Víkings síðan árið 2003. Í fyrra spilaði hún alla leiki liðsins í Landsbankadeild kvenna og skoraði hún 5 mörk. Í heildina hefur hún spilað 59 leiki fyrir félagið og skorað í þeim 40 mörk.

Einar Páll Tamimi, formaður meistaraflokksráðs Stjörnunnar, var að vonum ánægður með að hafa fengið Kareni til liðsins þegar Fótbolti.net náði tali af honum og sagði hann að þetta fyrirkomulag myndi henta öllum viðkomandi aðilum mjög vel. Telur hann að Karen muni reynast gríðarlegur liðsstyrkur.

„Við komumst að samkomulagi við Karen um fyrirkomulag sem hentar Stjörnunni, henni og HK/Víkingi mjög vel,“ sagði Einar Páll.

„Karen styrkir lið okkar verulega fram á við, enda einn efnilegasti, ef ekki besti knattspyrnumaður landsins, og hún mun leika með okkur stóran hluta Íslandsmótsins. Sjálf mun hún njóta góðs af því að leika með og á móti sterkari leikmönnum og loks mun HK/Víkingur fá hana aftur í sinn hóp áður en úrslitakeppni 1. deildar hefst. Að líkindum verður hún þá í betra formi og með dýrmætari reynslu að baki en ef hún hefði leikið allt tímabilið í fyrstu deildinni.“

Karen á fjölda landsleikja á bakinu með yngri landsliðum Íslands en á þó enn eftir að spila A-landsleik.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.