Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   þri 09. júní 2026 23:30
Ívan Guðjón Baldursson
4. deild: Álftanes með fullt hús eftir sex umferðir
Mynd: Aðsend
Álftanes 5 - 0 Hafnir
1-0 Harun Crnac ('3, sjálfsmark)
2-0 Markús Pálmi Pálmason ('12)
3-0 Bessi Thor Jónsson ('23)
4-0 Patrik Thor Pétursson ('28)
5-0 Sveinn Sær Vattnes Ingólfsson ('38, víti)

Álftanes er að rúlla upp 4. deildinni og vann sinn sjötta leik í sex fyrstu umferðum tímabilsins í kvöld.

Álftnesingar tóku á móti Höfnum og gjörsamlega pökkuðu gestunum saman á fyrsta hálftíma leiksins.

Leikmenn skiptu mörkunum bróðurlega á milli sín og var staðan orðin 4-0 eftir 28 mínútur, áður en Sveinn Sær Vattnes Ingólfsson setti fimmta og síðasta mark leiksins. Lokatölur 5-0.

Álftanes er því með 18 stig á meðan Hafnir sitja eftir í neðri hlutanum með 4 stig.
4. deild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Álftanes 5 5 0 0 15 - 6 +9 15
2.    Árborg 5 4 1 0 16 - 2 +14 13
3.    Hamar 5 4 0 1 22 - 13 +9 12
4.    Elliði 5 2 1 2 12 - 11 +1 7
5.    Úlfarnir 5 2 1 2 10 - 9 +1 7
6.    KFR 5 2 0 3 14 - 17 -3 6
7.    Hafnir 5 1 1 3 4 - 20 -16 4
8.    ÍH 5 1 0 4 16 - 17 -1 3
9.    Álafoss 5 1 0 4 5 - 11 -6 3
10.    Vængir Júpiters 5 1 0 4 8 - 16 -8 3
Slapp
banner