Almeria 3 - 2 Castellon (4-3 samanlagt)
1-0 Adrian Embarba ('41)
1-1 Alex Calatrava ('57)
1-2 Agustin Sienra ('69)
2-2 Alex Munoz ('80)
3-2 Stefan Dzodic
1-0 Adrian Embarba ('41)
1-1 Alex Calatrava ('57)
1-2 Agustin Sienra ('69)
2-2 Alex Munoz ('80)
3-2 Stefan Dzodic
Það var mikil dramatík þegar Almería tryggði sér sæti í úrslitaleik umspilsins um sæti í La Liga, efstu deild spænska boltans, í kvöld.
Portúgalska goðsögnin Cristiano Ronaldo á 25% hlut í Almería og hefur fagnað dátt þegar hann fylgdist með gríðarlega dramatískri viðureign á suðurhluta Spánar. Liðin gerðu 1-1 jafntefli í fyrri leiknum í Castellón en í kvöld fór seinni leikurinn fram.
Adri Embarba, fyrrum leikmaður Espanyol og Rayo Vallecano, skoraði fyrsta mark leiksins í fyrri hálfleik með frábæru skoti sem Romain Matthys markvörður náði að setja höndina í en það dugði ekki til.
Staðan var 1-0 eftir bragðdaufan fyrri hálfleik en það var mikil dramatík í seinni hálfleiknum. Gestirnir voru sterkari aðilinn til að byrja með og snéru stöðunni við með tveimur mörkum á tólf mínútna kafla.
Fyrra markið skrifast að stórum hluta á markvörð Almería sem fékk klaufalegt mark á sig frá Alex Calatrava sem ætlaði að gefa boltann fyrir, en seinna markið skoraði Agustin Sienra eftir aukaspyrnu. Sienra náði að setja tána í boltann og var heppinn að stýra honum í netið úr erfiðu færi.
Heimamenn skiptu um gír eftir þetta. Þeir áttu flott færi og skot í slá áður en bakvörðurinn Alex Munoz jafnaði metin eftir fyrirgjöf á 80. mínútu.
Sex mínútum var bætt við venjulegan leiktíma og náði Serbinn hávaxni Stefan Dzodic að skalla hornspyrnu í netið á 94. mínútu.
Castellón lagði allt í sóknarleikinn á síðustu mínútum uppbótartímans en skapaði ekki mikla hættu. Heimamenn fengu færi til að innsigla sigurinn en hvorugu liði tókst að bæta marki við leikinn, svo lokatölur urðu 3-2.
Almería mætir annað hvort Málaga eða Las Palmas í úrslitaleik um sæti í efstu deild.



