Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   þri 09. júní 2026 15:04
Kári Snorrason
Svona verður miðasalan fyrir stórleikinn í Víkinni
Frá leik Víkings og KR á síðasta ári.
Frá leik Víkings og KR á síðasta ári.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur fær KR í heimsókn eftir slétta viku í sannkölluðum stórleik. Um er að ræða tvö efstu lið deildarinnar og ljóst er að færri komast að en vilja.

Miðasala hefst á fimmtudaginn, þann 11. júní. Árs- og ungkortahafar fá forgang ásamt VIP meðlimum Víkings og hefst sala á þeim miðum í hádeginu.

Þá mun almenn miðasala opna klukkan 16:00 ef miðar eru enn í boði. Hámarksfjöldi miða í hverri færslu eru þrír.

Selt verður í númeruð sæti og jafnframt í stæði. KR mun sjá um sölu á stæðismiðum til síns stuðningsfólks


Slapp
banner