Fotbolti.net
09.07.26 - 22:12
Helgi Inguson

Ian Jeffs óánægður: Færin sem við fengum í dag voru nóg til að vinna tvo fótboltaleiki

Auglýsing
Ian Jeffs, þjálfari Breiðabliks

Ian Jeffs, þjálfari Breiðabliks

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
„Bara svekktur og pirraður," sagði Ian Jeffs, þjálfari Breiðabliks, eftir óvænt 3-2 tap gegn botnliði Fram í 10. umferð Bestu deildar kvenna.
Lestu um leikinn: Fram 3 - 2 Breiðablik
„Við fengum þrjú mjög góð færi, nýtum þau ekki og Fram skorar. Við brugðumst mjög vel við, skoruðum tvö mörk. Við áttum stóran hluta af fyrri hálfleiknum að mínu mati og hefðum átt að skora fleiri mörk. Þetta var jafnt fyrstu 10 mínúturnar, fengum dauðafæri og fínar stöður en við nýttum þér ekki nægilega vel og við fengum það bara í andlitið," sagði Ian Jeffs um gang leiksins.

Voru þetta sanngjörn úrslit?

„Nei ég myndi ekki segja það. En þær skora þrjú og við tvö. Færin sem við fengum í dag voru nóg til að vinna tvo fótboltaleiki. Þannig að ég er mjög ósáttur og óánægður með okkar færanýtingu í dag."

Hefði Breiðablik átt að vera meira en marki yfir í hálfleik?

„Við hefðum átt að vera tveimur til fjórum mörkum yfir í hálfleik fannst mér. Miðað við þessi færi og stöður sem við komum okkur í. Við höfum verið að vinna í þessu. Verið að vinna í meira flæði í okkar sóknarleik, sérstaklega á síðasta þriðjungi. Mér fannst við spila mjög vel í fyrri hálfleik, það vantar ekki upp á það. En við nýttum ekki færin og svo kemur góður kafli hjá andstæðingnum. Við áttum mjög erfitt með þessa góðu kafla sem Fram átti í seinni hálfleik," sagði Ian Jeffs að lokum.

Viðtalið í heild sinni má finna í spilaranum fyrir ofan
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.