Emil Atla með þrennu í Sambandsdeildinni - „Klára þetta verkefni"


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
„Sáttur með sigurinn, sáttur með mörkin, bara framar hálfleikur hjá okkur" sagði Emil Atlason, leikmaður Stjörnunnar eftir að hafa skorað þrennu í Sambandsdeildinni gegn Færeyska liðinu Víkingur Götu.
Hvernig fannst þér frammistaðan hjá liðinu í dag?
„Mér fannst fyrri hálfleikurinn svolítið erfiður hjá okkur. Við vorum að gera hann svolítið erfiðan, hann var ekki nógu góður. Þeir voru allt of mikið í skyndisóknum. Við vorum flottir í seinni hálfleik, við stjórnuðum leiknum alveg frá A til Ö, skoruðum góð tvö mörk og uppskárum flottan sigur."
Var leikurinn tvískiptur?
„Veit það ekki alveg, mér fannst við vera með yfirhöndina allan tímann í leiknum. Þeir áttu samt sín móment sérstaklega í fyrri hálfleik en maður er mest svekktur að hafa ekki skorað fleiri mörk. Við áttum marga sjensa og það hefði verið betra að vera með stærra forskot í næsta leik."
Gæti það bitið ykkur að þið séuð ekki með stærra forskot í leiknum?
„Við þurfum bara að klára þetta verkefni, þetta er góður hálfleikur eins og ég segi hjá okkur. Við þurfum að klára það."
Emil Atla skaut bæði vítin í neðra vinstra hornið, var þetta ákveðið?
„Ekkert þannig. Bara tilfinningin."


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson



