09.08.08 - 14:44
Magnús Már Einarsson
Charlton fær Bouazza á láni (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Charlton Athletic hefur fengið Hameur Bouazza á láni frá Fulham en lánssamningurinn gildir út komandi tímabil.
Bouazza kom til Fulham frá Watford síðastliðið sumar en átti við meiðsli að stríða og gekk ekki vel að festa sig í sessi á síðustu leiktíð
Hann hefur nú fengið leyfi til að fara til Charlton en Alan Pardew stjóri liðsins hefur lengi verið á eftir þessum knáa kantmanni.
Pardew greindi frá því fyrr í sumar að Fulham vildi ekki sleppa Bouazza en nú hefur það breyst.
Leikmaðurinn sjálfur hefur verið orðaður við Wigan Athletic, Espanyol og Osasuna en nú er ljóst að hann mun leika með Charlton í vetur.

Heimild: Sky